Á meðan að langflest Evrópuríki hafa sett fram aðlögunaráætlanir vegna loftslagsbreytinga er þessi vinna skammt á veg komin hér á landi og því lítil sem engin yfirsýn til staðar yfir mögulegt loftslagstengt tjón eða aðlögunarþörf innan íslensks sjávarútvegs næstu ár eða áratugi.

Svo segir í umfjöllun Matís en vísindatímaritið Climatic Change birti nýlega grein um hvernig sjávarútvegur og fiskeldi geta aðlagað starfsemi sína að áhrifum loftslagsbreytinga. Tímaritið sérhæfir sig í rannsóknum og lýsingum á loftslagsbreytingum, orsökum þeirra, afleiðingum og samverkun þess á milli.

Starfsmenn Matís, þau Ragnhildur Friðriksdóttir og Jónas R. Viðarsson, fóru fyrir þeirri vinnu sem liggur að baki aðferðafræðinni sem lýst er í greininni, en sú rannsóknarvinna átti sér stað innan verkefnisins ClimeFish sem lauk á síðasta ári.

Jákvæð og neikvæð áhrif

Í umfjöllun Matís segir að samstarfsverkefninu ClimeFish, sem styrkt var af Rannsóknaáætlun Evrópu (Horizon 2020), lauk á síðasta ári en niðurstöður og afurðir verkefnisins halda þó áfram að birtast í vísindatímaritum víða um heim. Fyrrnefnd grein fjallar um mikilvægi þess að sjávarútvegur hugi að aðgerðum til að aðlaga starfsemi sína að breyttu umhverfi vegna loftslagsbreytinga og þeim áskorunum og tækifærum sem í slíkum breytingum felast.

Loftslagsbreytingar hafa þegar haft áhrif á ýmsa þætti sem snerta á starfsemi sjávarútvegs- og fiskeldisfyrirtækja og rannsóknir benda til þess að slíkar breytingar munu aukast í náinni framtíð, segir þar.

„Þó slíkar breytingar komi til með að vera misjafnar í eðli sínu og umfangi eftir heimshlutum, starfsemi og stöðu í virðiskeðjunni, er ljóst er að þær muni geta haft umtalsverð áhrif á starfsemi sjávarútvegs- og fiskeldisfyrirtækja, bæði neikvæð og jákvæð.“

Nokkur dæmi

Í greininni eru tekin dæmi um slíkar breytingar innan sjávarútvegs; tilfærsla mikilvægra nytjastofna, s.s. vegna breytingar í stofnstærð, útbreiðslusvæði eða farmynstri, hættulegri og krefjandi aðstæður úti á hafi, auknar sveiflur í markaðsverði, sem og aukið flækjustig og spenna milli strandríkja og flota þegar kemur að kvótaskiptingu deilistofna. Allt eru þetta dæmi um áhrif sem þegar eru merkjanleg í hér í Norðvestur Atlantshafi.

Eins eru tiltekin dæmi um áhrif loftslagsbreytinga á starfsemi fiskeldis, eins og tjón á innviðum vegna ofsaveðurs, sveiflur í markaðsverði, framleiðslutap vegna sjúkdóma, eitraðra þörunga og sníkjudýra, skert aðgengi að fersku vatni og fóðri og skert framleiðni vegna breytinga í eldisumhverfi.

Hjá Matís standa vonir til þess að fjármagn náist til að nýta þá aðferðafræði sem þróuð var innan ClimeFish-verkefnisins og yfirfæra hana á íslenskan sjávarútveg og fiskeldi. Með því væri hægt að meta aðlögunarþörf og leggja grunninn að aðlögunaráætlun fyrir eina af mikilvægustu atvinnugreinum Íslendinga, segir í greininni.