Lítil velta var á viðskiptum á Aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag og tók gengi hlutabréfa á listanum litlum breytingum. Mest hækkaði bréf Össurar um 5,04% en mesta lækkun var á bréfum Haga um 0,95% og VÍS um 0,86%.

5,7 milljarða heildarvelta var á viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Þar af nam velta á skuldabréfamarkaði 4,74 milljörðum króna og velta á Aðalmarkaði um 909 milljónum króna.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,06% og er lokagildi hennar 1.282,74.