Gengi hlutabréfa HB Granda lækkaði um 0,88% í Kauphöllinni í dag. Ekki var mikil velta með hlutabréf félagsins eða upp á 87 milljónir króna. Bæði gengisþróunin og veltan var einkennandi fyrir viðskiptin á hlutabréfamarkaði í dag.

Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Haga um 0,66%, Vodafone um 0,65% og Regins um 0,31%.

Hins vegar hækkaði gengi hlutabréfa TM um 0,19%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,11% og endaði hún í 1.176 stigum. Heildarvelta með hlutabréf nam tæpum 645,5 milljónum króna.