Gengi bréfa Marel lækkuðu um 0,64% í Kauphöll Íslands í dag. Lítil viðskipti voru á bak við þessa lækkun eða tæplega 800 þúsund krónur. Gengi bréfa Icelandair hækkuðu um 0,61% en engin viðskipti voru með bréf Bank Nordik og Atlantic Petroleum.

Samtals var velta hlutabréfa tæplega 81 milljón króna og lækkaði úrvalsvísitalan um 0,19% og stendur í 1.056 stigum.