Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,31% í 360 milljón króna viðskiptum dagsins, og stendur hún nú í 1.740,74 stigum. Aðalvísitala Skuldabréfa hækkaði á sama tíma um 0,21% í tæplega 6 milljarða viðskiptum og náði hún nú 1.269,44 stigum.
Mest lækkun var á gengi bréfa VÍS í dag, en þau lækkuðu um 1,90% í tæplega 77 milljón króna viðskiptum. Stendur gengi bréfanna nú í 10,56 krónum.
Mest hækkun var á gengi bréfa Nýherja, eða um 0,50% í 28 milljón króna viðskiptum og fæst nú hvert bréf félagsins á 30,00 krónur.
Vísitölur Gamma
Hlutabréfavísitala Gamma lækkaði um 0,3% í dag í 0,3 milljarða viðskiptum.
Skuldabréfavísitala Gamma hækkaði um 0,2% í dag í 5,6 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,2% í 1,5 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 4,1 milljarða viðskiptum.