Lítill áhugi var á almennu hlutafjárútboði Skipta hf. en því lauk í dag.  Aðeins seldust um 7,49% af heildarhlutafé félagsins.

Alls óskuðu 179 fjárfestar eftir að kaupa 552.220.641 hluti í Skiptum eða sem nemur 7,49% af heildarhlutafé félagasins. Útboðsgengið var 6,64 krónur á hlut. Söluandvirðið nemur 3.666.745.047 krónum. 523.343.369 hlutum var úthlutað til fjárfesta sem skráðu sig fyrir hlutum að andvirði meira en 25 milljónir króna. 28.877.272 hlutum var úthlutað til fjárfesta sem skráðu sig fyrir hlutum að andvirði 100 þúsund til 25 milljónir króna.

Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá Skiptum og Kaupþing  en fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings banka hf. hafði umsjón með hlutafjárútboðinu.

„Það er mjög mikilvægt skref fyrir Skipti að ljúka útboðinu og verða í kjölfarið skráð á markað. Við fögnum því að fá nýja hluthafa í hluthafahópinn. Fjárfestar hafa sýnt félaginu góðan áhuga og ég vænti þess að þegar fram líða stundir muni þeim fjölga enn frekar. Boðnir voru til sölu þegar útgefnir hlutir og því hefur útboðið ekki áhrif á rekstur eða framtíðarhorfur félagsins. Að baki Skiptum stendur breiður hópur öflugra hluthafa,“ segir Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta í tilkynningunni.

Viðskipti með hlutafé Skipta munu hefjast í OMX ICE miðvikudaginn 19. mars 2008.