Helstu vísitölurnar í kauphöllunum í Evrópu hafa hækkað í morgun. Hækkunin er mest á Ítalíu þar sem MIB vísitalan hefur hækkað um  0,91%. Ítölsk hlutabréf lækkuðu mikið í gær.

Spænska IBEX35 vísitalan hefur hækkað um 0,53% en hún lækkaði einnig mikið í gær, um rúmlega 3%. FTSE í Lundúnum hefur hækkað um 0,76%.

Álag á spænsk ríkisskuldabréf til 10 ára hefur hækkað lítillega það sem af er morgni. Stendur álagið í 7,18%