Markaðir í Asíu hafa flestir hækkað lítillega í dag. Veikara jen styrkti stöðu útflytjenda í Japan en ótti við slæmar afkomutölur frá bandarískum fyrirtækjum kom í veg fyrir miklar hækkanir, að því er segir í South China Morning Post.
Nikkei Average í Japan hækkaði um 0,3%.