Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,03% í dag og endaði í 1.400,88 stigum. Gengi bréfa Icelandair Group hækkaði um 1,38%, Össurar um 0,92% og Regins um 0,74%. Gengi BankNordik hækkaði reyndar um ein 15% í einum viðskiptum upp á rúma 1,3 milljón króna. Gengi bréfa HB Granda lækkaði um 1,85% og Sjóvár um 1,47%.

Velta á hlutabréfamarkaði í dag nam 573,2 milljónum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 9,8 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 0,9 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,2% í 8,9 milljaða króna viðskiptum.