Hlutabréfamarkaðir ýmist hækkuðu eða lækkuðu lítillega í dag en  FTSE 300 vísitalan, sem mælir helstu hlutabréfavísitölur Evrópu, lækkaði um 0,3% í dag og hefur því lækkað um 45% það sem af er þessu ári.

Bankar og fjármálafyrirtæki lækkuðu í Evrópu í dag en aftur á móti hækkuðu olíu- gas og málmframleiðendur þar sem fyrrnefndar vörur hafa hækkaði í verði síðustu daga.

Í Lundúnum hækkaði FTSE 100 vísitalan um 0,1%, í Amsterdam hækkaði AEX vísitalan um 0,9% og í Frankfurt hækkaði DAX vísitalan um 1%.

Í París lækkaði CAC 40 vísitalan um 0,2% og í Sviss lækkaði SMI vísitalan um 0,6%.

Í Kaupmannahöfn lækkaði OMXC vísitalan um 1,3%, í Stokkhólmi hækkaði OMXS vísitalan hins vegar um 1,2% en í Osló lækkaði OBX vísitalan um 0,6%.