Rekstrarhagnaður (EBITDA) Nýherja hf. fyrir afskriftir nam 532 milljónum krína í fyrra en tap varð af rekstrinum eftir skatta upp á 72 milljónir króna. Heildartekjur Nýherja námu 15,5 milljörðum og jukust um 1.2 milljarða eða um 7,9% frá árinu 2010. Heildartap ársins var sem fyrr sgeir 72 milljónir en 124 milljónir voru vegna virðisrýrnunar á viðskiptavild dótturfélags. Eigið fé í árslok var 2.2 milljarðar og eiginfjárhlutfall 26%.

Þórður Sverrisson forstjóri Nýherja, segir í tilkynningu að allar deildir og dótturfélög Nýherja hafi skilað jákvæðri afkomu að einu frátöldu, en þrátt fyrir það hafi verið tap á rekstri félagsins. "Tap varð af rekstri Applicon A/S í Danmörku á árinu, vegna seinkana við uppsetningu á umfangsmiklu upplýsingakerfi fyrir tólf sjúkrahús á Sjálandi og því var ákveðið að gjaldfæra hluta af viðskiptavild félagsins. Applicon í Svíþjóð skilaði ágætri afkomu og vinnur nú að innleiðingu á stórri bankalausn fyrir Landshypotek bankann sem verður afhent í lok árs 2012. Á árinu voru átta Nýherjafyrirtæki innanlands sameinuð í þrjú, þ.e. Nýherja hf., Applicon ehf. og TM Software ehf. Starfsemi félagsins á höfuðborgarsvæðinu er nú nánast öll til húsa á tveimur stöðum í stað fjögurra. Með þessu næst fram umtalsvert hagræði í starfsemi fyrirtækjanna hérlendis. Horfur eru á batnandi rekstri erlendis og því væntingar um betri arðsemi samstæðunnar á þessu ári en árið 2011," segir Þórður.