Lítil velta var með skuldabréf í Kauphöllinni í dag eða fyrir 2,6 milljarða króna. Heildarvelta með verðtryggð íbúðabréf nam aðeins 430 milljónum króna. Velta með óverðtryggð ríkisskuldabréf nam 2,2 milljörðum króna.

Skuldabréfavísitala Gamma hækkaði í dag um 0,02%. Þar af hækkaði vísitala Gamma fyrir verðtryggð skuldabréf um 0,02%. Sé litið eina viku aftur hefur vísitala verðtryggðra skuldabréfa hækkað um 1,6%.  Vísitala fyrir óverðtryggð bréf hækkaði hins vegar um aðeins 0,005% í viðskiptum dagsins.