Píratar mælast með mest fylgi íslenskra stjórnmálaflokka í dag eða 36%. Afar litlar breytingar eru á fylgi flokkanna milli mánaða eða á bilinu 0,1-1,1 prósentustig. Þetta kemur fram í Þjóðarpúls Gallup í dag.

Fylgi Framsóknarflokksins er svipað og áður og mælis liðlega 12%. Litlar breytingar eru einnig á fylgi annarra flokka en rösklega 11%  segast myndu kjósa Vinstri græn, 9% myndu kjósa Samfylkinguna, rúmlega 3% Bjarta framtíð, liðlega 2% Viðreisn og tæplega 3% aðra flokka eða framboð.

Tæplega 10% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og nær 11% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar um prósentustig milli mánaða en nær 36% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana.