Helstu hlutabréfavísitölurnar vestanhafs munu ef að líkum lætur verða nánast óbreyttar við opnun markaðar í dag, síðasta viðskiptadag vikunnar. Til þess benda framvirk viðskipti en það sem af er degi hefur S&P500 vísitalan lækkað um 0,1%, Nasdaq um fjórðung úr prósenti og Dow Jones um 0,16%.

Markaðir vestanhafs opna kl. 13:30 að íslenskum tíma.