Litlar breytingar urðu á gengi helstu hlutabréfavísitalna í Asíu í nótt en segja má að markaðir bíði eftir því að niðurstaða náist í skuldamálum Grikkja en forsætisráðherra, Lucas Papademos, tókst ekki að ná samkomulagi við forystumenn grískra stjórnmálaafla um aðgerðir í ríkisfjármálum í gær og í nótt.

Nikkei-vísitalan lækkaði um 0,15% og ASX í Ástralíu einnig en Sjanghæ-vísitalan í Kína var við núllið og Han Seng í Hong Kong hafði lækkað um 0,2% þegar tæpur klukkutími var í lokun þar.