Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,07% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.180,70 stigum. gengi bréfa TM hækkaði um 0,88% og VÍS um 0,65%. Gengi bréfa Haga lækkaði um 1,18% en önnur félög stóðu í stað. Velta á hlutabréfamarkaði nam 752,2 milljónum króna og nam velta með bréf Icelandair Group þar af 524,1 milljón króna án þess að viðskiptin hefðu áhrif á gengi bréfa félagsins.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,06% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,10% en sá óverðtryggði hækkaði um 0,03%. Velta í viðskiptum með skuldabréf í vísitölunni nam tæpum 3,1 milljarði króna.