Verð á bensínlítra hjá olíufélaginu N1 er nú 255,6 krónur, eftir að verð hækkaði um 5 krónur í morgun. Verð á stöðvum Shell er um 252,9 krónur. Á öðrum bensínstöðvum er algengt verð rúmlega 250 krónur fyrir bensínlítrann, nú í morgun.

Verð á díselolíu hækkaði einnig hjá N1 í morgun. Lítrinn kostar nú 263,5 krónur eftir 5 krónu hækkun í morgun.