Sigurður Sverrisson  tók þann 1. október sl.  við starfi forstöðumanns upplýsinga- og kynningarmála hjá LÍÚ.

Sigurður er 51 árs gamall. Hann útskrifast nú í haust með MSc gráðu í almannatengslum frá University of Stirling í Skotlandi. Hann hóf störf við blaðamennsku árið 1978 og hefur nánast allan sinn starfsferil unnið við fjölmiðlun og almannatengsl.

Sigurður kemur til LÍU frá KOM Almannatengslum þar sem hann hefur starfað frá árinu 2005. Þar áður starfaði hann m.a. hjá PR Almannatengslum og Athygli.

Þetta kemur fram á vefsíðu LÍÚ.