Starfsemi margra útgerðarfyrirtækja er í óvissu sökum vandamála með greiðsluflæði á milli landa. Ein meginorsök greiðsluflæðivandans er að endurreistir viðskiptabankar eru ekki til í alþjóðlegum greiðslukerfum.

Þetta kemur fram á vef LÍÚ.

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að ofan á fyrirsjáanlegt gríðarlegt tap vegna hruns íslensku viðskiptabankanna bætist við að greiðslur frá erlendum kaupendum fiskafurða berist seint eða ekki til landsins.

Þá kemur fram á vef samtakanna að daglegir fundir eru nú haldnir í Húsi atvinnulífsins þar sem saman koma fulltrúar aðildarfélaga samtakanna til að bera saman bækur sínar og þrýsta á stjórnvöld og Seðlabanka um úrbætur.

Þá segir einnig að dæmi eru um að gjaldeyrismillifærslur taki allt að átta daga og önnur dæmi eru um að greiðslur hafi hreinlega „týnst.“

„Eins og fram hefur komið hafa aðilar vinnumarkaðarins eindregið stutt hugmyndir um að farið verði fram á aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,“ segir á vef LÍÚ.