Ríkið ætlar að taka til sín 70% af áætluðum hagnaði útgerðar og fiskvinnslu í svokallað sérstakt veiðigjald. Þar að auki ætlar ríkið að innheimta 8 krónur á þorskígildi í svokallað almennt veiðigjald. Ætla má að það muni nema rúmum 3,5 milljörðum á næsta fiskveiðiári.

Þetta kemur fram í viðbrögðum Landsambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) við nýju kvótafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í dag.

Á vef LÍÚ segir að með nýjum frumvarpi sé horfið frá kröfum um hagkvæman sjávarútveg, aflaheimildir gerðar upptækar til pólitískrar endurúthlutunnar og ofurskattar lagðir á greinina.

„Stór og smá sjávarútvegsfyrirtæki víðsvegar um landið hafa með hagræðingu, kaupum á aflaheimildum og stóraukinni tæknivæðingu á sl. 20 árum breytt íslenskum sjávarútvegi í arðbæra atvinnugrein sem skilar umtalsverðum tekjum í þjóðarbúið,“ segir á vef LÍÚ.

Þá segir að fyrrnefndar aðgerðir muni draga allan hvata úr núverandi kerfi, koma í veg fyrir fjárfestingar, gera íslenskan sjávarútveg óhagkvæman og leggja þungar byrðar á landsbyggðina.

Viðbrögð LÍÚ eru þau að verið sé að ríkisvæða sjávarútveginn í gegnum skattkerfið og draga úr hvata til hagkvæmra veiða og skynsamlegrar nýtinga fiskistofna.

Sjá nánar á vef LÍÚ.