Það hefur margt breyst hjá konum í atvinnulífinu segir Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova, sem hlaut í dag viðurkenningu Félags kvenna í atvinnulífinu. Liv sagði í ræðu sinni að hún hefði oft verið súkkulaðikleina og vísaði þá í orð iðnaðarráðherra. Hún sagði jafnframt að hún hefði nýtt þau tækifæri vel og hvatti aðrar konur til að gera slíkt hið sama.

VB Sjónvarp ræddi við Liv.