Ken Livingstone, borgarstjóri London, gagnrýndi yfirtökuboð Nasdaq í kauphöllina í London (LSE) harðlega í gær, og fór fram á að samkeppnisstofnun Bretlands (OFT) myndu rannsaka hver áhrif yrðu á samkeppni ef af samrunanum yrði, segir í frétt Dow Jones.
Ef svo færi að OFT kæmist að þeirri niðurstöðu að yfirtakan hafi neikvæð samkeppnisáhrif, verður yfirtökuboðinu, sem var lagt fram 20. nóvember, vísað til samkeppnisráðs Bretlands (e. Competition Commission) sem mun þá setja tilboðið í biðstöðu á meðan rannsókn fer fram.
Livingstone segir að yfirtakan muni skerða samkeppnishæfni London sem alþjóðlegrar fjármálamiðstöðvar og að með yfirtökunni nái bandarískar forskoti í samkeppni um skráningar alþjóðlegra fyrirtækja, þar sem LSE sé eini aðilinn sem veiti þeim raunverulega samkeppni.
Livingstone telur einnig að LSE muni þurfa að taka upp íþyngjandi bandarískar reglugerðir ef af samrunanum verður, en áhyggjuraddir hafa heyrst víðar um áhrif þess að erlendir aðilar eignist LSE. Nasdaq hefur áður sagt að LSE yrði undanþegið bandarískum reglugerðum.
OFT segir að sér sé skylt að skoða alla samruna, en vildi ekki tjá sig um ummæli Livingstone.