Ljósbrá Baldursdóttir hefur verið ráðin sem sviðsstjóri endurskoðunarsviðs PwC. Kristinn F. Kristinsson sem lætur af starfi sviðsstjóra hefur gegnt starfinu frá 2010 en hann mun áfram sinna endurskoðun fyrir hönd fyrirtækisins.

Ljósbrá hóf störf hjá PwC í nóvember 2002 og hlaut löggildingu sem endurskoðandi árið 2006. Til viðbótar störfum sínum sem endurskoðandi hefur hún stýrt fræðslu- og símenntunarstarfi á endurskoðunarsviðinu undanfarin ár auk þess að taka þátt í ráðningum á starfsfólki sem hyggur á löggildingarpróf.