Umframeftirspurn var eftir nýjum hlutum í Coripharma, sem lauk 2,5 milljarða króna hlutafjáraukningu í marsmánuði. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu þar sem segir að hluti fjárfestanna komi úr röðum núverandi hluthafa, en nýir aðilar hafi einnig bæst í hluthafahópinn.

Stærsti nýi hluthafinn sé Iðunn framtakssjóður sem er nýstofnaður framtakssjóður í rekstri Kviku eignastýringar. Eftir hlutafjárhækkunina ráði Iðunn yfir 19% hlut í félaginu og sé þar með jafnframt stærsti hluthafi félagsins.

„Meðal annarra stórra hluthafa má nefna framtakssjóðinn TFII, sem er í stýringu Íslenskra verðbréfa, BKP Invest, sem er í meirihlutaeigu Bjarna K. Þorvarðarsonar stjórnarformanns Coripharma, Vátryggingafélag Íslands, Snæból og Eignarhaldsfélagið Hof. Fjárfestarnir eru bæði innlendir og erlendir og íslenskir lífeyrissjóðir koma nú einnig að hlutafjárhækkun félagsins í fyrsta sinn með beinum hætti,“ segir í tilkynningunni.

Sem fyrr var Fyrirtækjaráðgjöf Kviku ráðgjafi Coripharma við hlutafjáraukninguna.

„Það er ánægjulegt að sjá þennan mikla áhuga íslenskra fjárfesta á að taka þátt í uppbyggingu félagsins og að viðhalda þessum mikilvæga iðnaði hérlendis. Ásamt því að renna stoðum undir þróunar- og rannsóknarstarf Coripharma, mun hlutfjáraukningin styrkja stefnu félagsins um bættan aðgang að erlendum mörkuðum.  Áætlað er að þróa og markaðssetja 5-6 ný samheitalyf árlega. Þróun á nýjum samheitalyfjum er kostnaðarsöm og tímafrek en þessi fjármögnun gerir okkur kleift að halda ótrauð áfram í átt að markmiðum okkar,“  segir Jónína Guðmundsdóttir, forstjóri Coripharma, í fréttatilkynningunni.