Brunnur Ventures hefur lokið fjármögnun á 8,3 milljarða króna vísisjóði (e. venture capital fund) sem ber nafnið Brunnur vaxtarsjóður II, að því er kemur fram í fréttatilkynningu. Sjóðurinn er fjármagnaður af tíu lífeyrissjóðum og Landsbankanum. Landsbréf munu annast rekstur sjóðsins í samstarfi við ábyrgðaraðilann Brunn Ventures. Sjóðnum er ætlað að fjárfesta í íslenskum sprota- og vaxtarfyrirtækjum.

Þetta er annar vísisjóður Brunns Ventures en fyrir sex árum ýtti sjóðurinn úr vör fjögurra milljarða króna sjóði, sem nú er fullfjárfestur. Hann fjárfesti meðal annars í Oculis, DT Equipment, Grid, Laka Power, Nanitor, IMS og Avo Software.

Markmið sjóðsins er að fjárfesta að lágmarki í 12 sprotafyrirtækjum en vænta má að um 20 félög verði í eignasafninu. Fjárfest verður fyrir 150 til 350 milljónir króna í hverju félagi.

„Mikil þörf er á nýjum vísisjóði hér á landi en lítið hefur verið fjárfest í nýjum sprotum á árinu 2020. Við sjáum mörg tækifæri í íslenskum sprota- og vaxtarfyrirtækjum. Það á meðal annars rætur að rekja til þess að hér á landi er mikið framboð af spennandi fjárfestingakostum enda mikil gróska í nýsköpun á síðustu árum. Okkar fyrri sjóður, Brunnur vaxtasjóður I, gefur góða vísbendingu um að árangur muni nást með þennan nýja sjóð," er haft eftir Sigurði Arnljótssyni, framkvæmdastjóra Brunns Ventures.

Fjárfestingastefna sjóðsins veitir talsvert svigrúm til fjárfestinga en tekið er mið af eftirfarandi ráðandi þáttum; að fyrirtækið sem fjárfest er í sé gjaldeyrisskapandi, að rekstur fyrirtækja sem fjárfest er í sé vel skalanlegur, að fyrirtæki sem fjárfest er í búi yfir viðunandi samkeppnisforskoti í formi þekkingar, viðskiptaleyndarmáls eða einkaleyfis og að frumkvöðullinn og teymið sem standa að baki fyrirtækjum sem fjárfest er í séu taldir framúrskarandi á sínu sviði. Að lokum er lögð áhersla á að fyrirtækið starfi í einhverjum eftirtalinna geira; hugbúnaður og veflausnir, afþreyingariðnaður, hátækni, líftækni, orkuiðnaður, sjávarútvegstækni eða matvælaframleiðsla.

„Stofnun sjóðsins er ánægjuleg vísbending um aukinn áhuga fjárfesta á nýsköpun og þeim tækifærum sem felast í því að auka fjölbreytni í íslensku atvinnulífi. Við þökkum hluthöfum Brunns vaxtarsjóðs II það traust sem þeir sýna okkur með áskriftarloforðum í sjóðinn og hlökkum til áframhaldandi góðs samstarfs með öflugum hópi sérfræðinga í nýsköpunarverkefnum hjá Brunni Ventures GP,“ segir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa.

Brunnur Ventures var stofnað af Árna Blöndal og Sigurði Arnljótssyni. Árni var meðstofnandi og framkvæmdastjóri hjá netauglýsingafyrirtækinu BePaid.com um aldamótin. Hann stýrði vísisjóðnum Uppsprettu í fimm ár og hefur starfað við fjárfestingar vaxtarfyrirtækja síðan. Sigurður tók meðal annars þátt í að stofna leikjafyrirtækið CCP og var forstjóri þess fyrstu árin. Sigurður hefur komið að uppbyggingu fjölda vaxtarfyrirtækja.

Samhliða því að koma á fót Brunni vaxtarsjóði II hafa tveir fjárfestingastjórar bæst í hópinn; Kjartan Örn Ólafsson sem er reyndur frumkvöðull og englafjárfestir og starfaði um árabil sem framkvæmdastjóri á viðskiptaþróunarsviði fjölmiðlafyrirtækisins Bertelsmann í New York, og Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, sem starfaði síðustu 6 ár hjá Carbon Recycling International, og var aðstoðarforstjóri þess.