Straumur fjárfestingabanki og MP banki hafa lokið vinnu við áreiðanleikakannanir og útfærslu á samruna bankanna. Greint er frá þessu í DV .

Tilkynnt var um samruna bankanna fyrir rúmum tveimur mánuðum síðan en fram kemur í DV að nú sé ljóst að sameiningin muni ganga eftir að því gefnu að hluthafar og eftirlitsaðilar veiti henni formlegt samþykki.

Greint er frá því að boðað hafi verið til starfsmannafundar hjá MP banka, sem fram á að fara í dag, þar sem greint verði frá þessum niðurstöðum.