Á stjórnarfundi Stapa lífeyrissjóðs var ákveðið að lækka vexti sjóðfélagalána í 4,2% frá 1. janúar n.k., en áður höfðu þeir verið lækkaðir úr 5,7% í 5,2% 1. desember sl.

Í tilkynningu félagsins segir að jafnframt var ákveðið að setja hámark á ný lán sjóðfélaga, 10 milljónir kr, en áður ákvarðaðist hámarkið eingöngu af veðhæfi fasteignar.

„Við viljum með þessu reyna að koma til móts við okkar sjóðfélaga á erfiðum tímum.“ sagði Kári Arnór Kárason framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs í frétt á heimasíðu sjóðsins.

„Lækkun vaxta og þar með lækkun á greiðslubyrði er að okkar mati skynsamlegasta leiðin við núverandi aðstæður. Það er okkar skoðun að mikilvægt sé bæði fyrir okkar félagsmenn og sjóðinn að sem flestir geti staðið í skilum. Aukin vanskil og dýrar innheimtuaðgerðir munu bitna bæði á sjóðnum og okkar félagsmönnum og við viljum reyna að komast hjá slíkum aðgerðum í lengstu lög. Þetta mun að sjálfsögðu ekki leysa vanda allra en er vonandi gott framlag til þess að gera framtíðina eitthvað bærilegri.“