Hlutabréf lækkuðu í Evrópu í dag og segir Reuters fréttastofan að fjárfestar haldi að sér höndum og bíði eftir ákvörðun um stýrivexti bæði hjá Englandsbanka og Seðlabanka Evrópu.
FTSEurofirst 300 vísitalan lækkaði um 0,7% í dag og voru það helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu lækkun dagsins.
Í Lundúnum lækkaði FTSE 100 vísitalan um 0,1% en í Amsterdam lækkaði AEX vísitalan um 0,7% og í Frankfurt lækkaði DAX vísitalan um 0,7% sömuleiðis. Í París lækkaði CAC 40 vísitalan um 0,8%.
Í Kaupmannahöfn lækkaði OMX vísitalan um 0,9% en í Osló hækkaði OBX vísitalan um 0,1%.
Lækkun vestanhafs
Í Bandaríkjunum hafa hlutabréf einnig lækkað það sem af er degi. Þannig hefur Nasdaq lækkað um 1,1%, Dow Jones um 0,6% og S&P 500 um 0,8%.