Lækkanir urðu á Bandaríkjamarkaði í dag.

Lækkanirnar eru m.a. raktar til þess að tilkynnt hefur verið um vaxandi atvinnuleysi í Bandaríkjunum. Fasteignasala var einnig undir væntingum.

Flökktandi olíuverð hefur líka áhrif á mörkuðum.

Nasdaq vísitalan lækkaði um 1,97%, Dow Jones lækkaði um 2,4% og Standard & Pours lækkaði um 2,28%.

Olíuverð hækkaði um 0,82% og kostar olíutunnan 125,46 Bandaríkjadali þegar þetta er ritað.