Hlutabréf í Asíu lækkuðu í dag og er þetta þriðja vikan í röð þar sem hlutabréfamarkaðir lækka yfir vikuna í Asíu að sögn Bloomberg fréttaveitunnar.
Það voru helst framleiðslufyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins en þau hafa hagnast nokkuð á hækkandi verði á olíu og gulli síðustu mánuði en verðhækkun á þeim vörum hefur nú gefið nokkuð eftir.
MSCI Kyrrahafsvísitalan lækkaði um 0,6% og hefur ekki verið lægri frá 7. ágúst 2006. Þá lækkaði hún um 1,8% í vikunni og hefur lækkað um 21% það sem af er ári.
Í Japan hækkaði Nikkei vísitalan hins vegar um 0,5% í þó afar litlum viðskiptum miðað við það sem gengur og gerist í Japan.
Í Hong Kong lækkaði Hang Seng vísitalan um 1,1%, í Singapúr lækkaði Straits vísitalan um 0,6% en í Ástralíu stóð S&P 200 vísitalan í stað í morgun.
Í Kína lækkaði CSI 300 vísitalan um 1,2%.