Hlutabréf í Evrópu héldu áfram að lækka í dag og eru lækkanirnar farnar að valda fjárfestum miklum áhyggjum en þeir telja að lækkunin muni éta hratt upp hagnað undanfarinna missera. Lækkun á verði hlutabréfa í Evrópu hefur komið verst niður á félögum í námuvinnslu og iðnaði.