Hlutabréf lækkuðu í Evrópu í dag. Í fararbroddi lækkananna í dag voru tryggingafélög, bílaframleiðendur og flugfélög en félög í þessum geira lækkuðu í kjölfar veikingar Bandaríkjadals og hækkunar á olíuverði sem er komið yfir 98 dali tunnan.

Dow Jones Stoxx 600 vísitalan lækkaði um 0.8% og er 375.7 stig.