Hlutabréf hafa lækkað í Evrópu í morgun og segir Reuters fréttastofan að fjárfestar hafi enn áhyggjur af lausafjárkrísu og skort á lánsfé.

Þannig hefur FTSEurofirst 300 vísitalan lækkað um 0,3% það sem af er degi.

Það eru bankar og fjármálafyrirtæki sem leiða lækkanir en bankar á borð við Commerzbank, Credit Suisse og Credit Agricole hafa allir lækkað um 2,5% í morgun. Þá hefur Deutsche Postbank lækkað um 3% en orðrómur er um að bankinn muni í vikunni gefa út afkomuviðvörun þó það hafi ekki fengist staðfest að sögn Reuters.

Í Lundúnum hefur FTSE 100 vísitalan staðið í stað í morgun. Þá hefur DAX vísitalan í Frankfurt og AEX vísitalan í Amsterdam lækkað um 0,1% á meðan CAC 40 vísitalan í París hefur lækkað um 0,2%.

Í Kaupmannahöfn hefur OMXC vísitalan lækkað um 0,2% en í Osló hefur OBX vísitalan hækkað um 0,6%.