FL Group [ FL ] hefur lækkað um 10,02% í viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Þá hefur velta með bréf í félaginu aðeins verið 92,7 milljónir á meðalgenginu 6,2.

Þá hefur Exista [ EXISTA ] lækkað um 9,5% í dag. Veltan með bréf í félaginu er tæplega 183 milljónir.

Aðeins eitt félag hefur hækkað, en Eik banki hefur hækkað um 5%.

Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 3,63% og velta með hlutabréf er nú, kl. 13:30, 5,7 milljarðar.