Hlutabréf lækkuðu í dag á Bandaríkjamarkaði. Það sem helst veldur lækkuninni er tilkynning um óvænt tap Wanchovia bankans, sem fjallað var um fyrr í dag.

Einnig jók spá Goldman Sachs á svartsýni á mörkuðum.

Nasdaq vísitalan lækkaði í dag um 0,63%. Dow Jones lækkaði um 0,19% og Standard & Poor´s lækkaði um 0,34%.

Olíuverð hækkaði um 1,49% og er nú 111,78 Bandaríkjadalir á tunnu.