Hlutabréf hafa lækkað á flestum stöðum í Evrópu í morgun eftir að hafa hækkað örlítið í gær.

Þegar þetta er skrifað, kl. 09:30 hefur FTSE 100 vísitalan lækkað um 0,4%.

Í Lundnúnum hefur FTSE 100 vísitalan lækkað um 0,6%, í Amsterdam hefur AEX vísitalan lækkað um 0,9% og í Frankfurt hefur DAX vísitalan lækkað um 0,8%.

Í París hefur CAC 40 vísitalan lækkað um 1,3% og eins hefur SMI vísitalan í Sviss lækkað um 1,3.

Í Kaupmannahöfn hefur OMXC vísitalan lækkað um 0,2%, í Stokkhólmi hefur OMXS vísitalan lækkað um 0,5% en í Osló hefur OBX vísitalan hækkað um 1,1%.