Hlutabréf lækka í upphafi dags í Evrópu og hefur FTSEurofirst 300 vísitalan lækkað um 0,5%. Þó hefur orðið örlítil hækkun á einstaka stöðum.

Í Lundúnum hefur FTSE 100 vísitalan lækkað um 0,4%. Hins vegar hefur DAX vísitalan í Frankfurt hækkað um 0,13% og í Amsterdam stendur AEX vísitalan í stað.

Í Kaupmannahöfn hefur OMXC vísitalan hækkað um 0,3% en í Osló hefur OBX vísitalan hækkað um 0,9%.