Hlutabréfamarkaðir lækkuðu lítillega í Evrópu í dag en að sögn Reuters fréttastofunnar voru það olíu og orkufyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins á annars rólegum degi viðskipta.

FTSE 100 vísitalan, sem mælir helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu, lækkaði um 0,1%.

Sem dæmi um lækkun olíu og orkufyrirtækja lækkuðu BG Group, Shell og Total öll á bilinu 0,4% - 3,3% en Shell hafði þó um tíma í dag lækkað um 3,5%.

Í Lundúnum lækkaði FTSE 100 vísitalan um 0,1%, í Amsterdam lækkaði AEX vísitalan um 0,6% og í Frankfurt lækkaði DAX vísitalan um 1%.

Í París lækkaði CAC 40 vísitalan um 0,7% og í Sviss lækkaði SMI vísitalan um 0,4%.

Í Kaupmannahöfn lækkaði OMXC vísitalan um 1,4%, í Stokkhólmi lækkaði OMXS vísitalan um 0,8% en í Osló hækkaði OBX vísitalan hins vegar um 1,9%.