Töluverð lækkun var á hlutabréfamörkuðum í Evrópu í dag. Norræna vísitalan OMXN40 lækkaði um 2,5%, í Bretlandi var lækkunin 1,1%, 1,5% í Frakklandi og 0,4% í Þýskalandi, þar sem lækkunin var einna minnst í kauphöllum álfunnar. Lækkunin í Evrópu fylgdi í kjölfar lækkunar í Japan og markaðir í Bandaríkjunum hafa einnig lækkað það sem af er degi.