Heimsmarkaðsverð á hráolíu (Crude oil) hefur lækkað það sem af er degi bæði á markaði í London og New York. Er verðið hjá Brent í London skráð á 57,10 dollara tunnan og mesta lækkun innan dagsins 1,75%. Á NYMEX hrávörumarkaði í New York er hráolíuverðið skráð á 56,92 dollara og mesta lækkun þar er 1,90%. Lokaverðið í gær var 58,02 dollarar tunnan.