Lækkun varð á Bandaríkjamarkaði í dag sjötta daginn í röð, en fyrirheit um samhæfða alþjóðlega stýrivaxtalækkun náði ekki að blása lífi í markaðinn.

Nasdaq vísitalan lækkaði í dag um 0,5%. Dow Jones lækkaði um 2,1% og Standard & Poor´s lækkaði um 1,2%.

Olíuverð lækkaði um 0,8% í dag og kostar tunnan nú 89,3 Bandaríkjadali.