Dow Jones hlutabréfavísitalan lækkaði í dag um 0,56%, S&P 500 lækkaði um 0,37% en Nasdaq hækkaði um 0,04%. Dagurinn á Wall Street var í takt við síðustu daga. Tölur sem birtust um miðja vikuna og sýna vaxandi atvinnuleysi og samdrátt í framleiðslu valda svartsýni fjárfesta.