Lækkun á mörkuðum í Asíu í dag er sú mesta í þrjár vikur. Mest var lækkunin hjá Mitsubishi UFJ Financial Group og Sumitmo Mitsyi Financial Group, tveimur stærstu bönkum í Japan. Lækkun bankanna er sú mesta í þrjú ár.

Kínverska flugfélagið Easten Airlines féll um 14% í Hong Kong í dag.

Stærsta flugfélaga Ástralíu, Qantas Airways, hækkaði afkomuspá sína á dag en samkvæmt nýju spánni verður methagnaður af rekstri félagsins á árinu sem nú er að líða.

TOBIX vísitalan í Tókýó lækkaði um 2,6% í dag og Nikkei 225 lækkaði um 2,5%. CSI 300 í Kína lækkaði um 3,8% og HO CHI MINH vísitalan í Víetnam lækkaði um 1,7%.