Hlutabréf í Asíu lækkuðu um 1,1% samkvæmt DJ Asia-Pacific vísitölunni. Hlutabréf lækkuðu um 1,1% í Japan en hækkuðu um 0,8% í Sjanghæ og um 0,6% í Hong Kong. Þá lækkuðu hlutabréf í Ástralíu um 1%.

Þessi lækkun kemur í kjölfar lækkunar í Bandaríkjunum í gær og FT segir að hún stafi af áhyggjum af tapi hjá bandarískum bönkum. Goldman Sachs og Morgan Stanley birta uppgjör sín í vikunni.