Hlutabréf lækkuðu við opnun markaða í Evrópu í morgun og höfðu lækkað um 2,8% samkvæmt Euronext 100 vísitölunni þegar þetta er skrifað. Lækkun var á nær öllum mörkuðum og kemur hún meðal annars í kjölfar aðgerða til að bjarga Fortis bankanum.

Hlutabréf í Asíu lækkuðu einnig í viðskiptum dagsins. Lækkunin nam 1,3% í Japan og 3% í Hong Kong.