Hlutabréf lækkuðu í Asíu í dag eftir að hafa hækkað fjóra daga í röð.

MSCI Kyrrahafs vísitalan lækkaði um 0,5% en hefur engu að síður hækkað um 7,8% í apríl sem er mesta hækkun á einum mánuði frá því í september 2005 að sögn Bloomberg fréttaveitunnar.

Í Japan lækkaði Nikkei vísitalan um 0,3%, í Hong Kong lækkaði Hang Seng vísitalan um 0,6%, í Singapúr lækkaði Straits vísitalan um 0,8% og í Ástralíu lækkaði S&P 200 vísitalan um 0,2%.

Í Kína hækkaði CSI 300 vísitalan hins vegar um 4,8%.