Hlutabréf lækkuðu í Asíu í dag í fyrsta skipti í fjóra daga og voru það helst samgöngufyrirtæki og lyfjaframleiðendur sem leiddu lækkanir dagsins að sögn Bloomberg fréttaveitunnar.
MSCI Kyrrahafsvísitalan lækkaði um 1% eftir að hafa að vísu hækkað um 0,6% innan dags í dag.
Í Japan lækkaði Nikkei vísitalan um 0,2%, í Kína lækkaði CSI 300 vísitalan um 0,5% og í Hong Kong lækkaði Hang Seng vísitalan um 0,8%.
Í Singapúr lækkaði Straits vísitalan um 0,8% og í Ástralíu lækkaði S&P 200 vísitalan um 1,2% og hefur nú að sögn Bloomberg ekki verið lægri í tvö ár.