DJ Asia-Pacific hlutabréfavísitalan lækkaði um 0,2% í dag, en engin einstefna var á mörkuðum, þar sem Japan lækkaði til að mynda en markaðir í Sjanghæ og Hong Kong hækkuðu. Í Evrópu hefur Euronext 100 vísitalan lækkað um 0,8% í fyrstu viðskiptum.

Bloomberg segir að hlutabréf í Volvo kunni að lækka eftir að Citigroup hafi ráðlagt fjárfestum að selja bréf í félaginu, sem sé það næst stærsta í heimi í framleiðslu á stórum flutningabílum.