DJ Asia-Pacific vísitalan lækkaði um 0,6% í dag og lækkun var á flestum mörkuðum í Asíu og Ástralíu. Í Japan nam lækkunin 1,1% og í Sjanghæ í Kína 0,8%. Hong Kong var meðal fárra undantekninga en þar hækkaði markaðurinn um 0,9%.

Markaðir í Evrópu hafa einnig lækkað í fyrstu viðskiptum. Í Kaupmannahöfn nemur lækkunin 1,6%, 2% í Frankfurt og 1,8% í London þegar þetta er skrifað.

Swiss Re hefur leitað til Berkshire Hathaway, fjárfestingafélags Warren Buffets til að afla 3 milljarða svissneskra franka. Um leið og Swiss Re sagði frá þessu upplýsti það um 1 milljarðs taprekstur í fyrra. Félagið féll um 7,3% við tíðindin, að sögn MarketWatch.