Hlutabréf lækkuðu lítillega í Asíu í dag en að sögn Bloomberg fréttaveitunnar fara áhyggjur fjárfesta um frekar samdrátt á fjármálamörkuðum vaxandi.
MSCI Kyrrahafs vísitalan lækkaði um 1,5% og hefur nú ekki verið lægri frá því í lok október
Í Japan lækkaði Nikkei vísitalan um 1,3%, í Hong Kong lækkaði Hang Seng vísitalan um 0,7% og í Kína lækkaði CSI 300 vísitalan um 1%.
Í Singapúr lækkaði Straits vísitalan um 0,3% og í Ástralíu lækkaði S&P 200 vísitalan um 0,9%.